Viðarklætt hús er viðhaldslétt, ef réttur viður er valinn. Allur viður gránar, sé ekki borið á hann. En hann endist betur með vörn.

 

Við bjóðum upp á Western Red Cedar og Síberíulerki í klæðningar. Yfirleitt er WRC klæðningin tekinn inn eftir pöntunum, og unnin í þá stærð/prófil sem óskað er eftir. Algeng þykkt er 22mm og breidd 145mm. Það er hægt að fá mjórra eða breiðara, þynnra og þykkara.

Síberíulerkið er bandsagað og er fáanlegt í 25mm þynnst. Heflað endar það í 22mm. Algeng breidd er 150mm. Síberíulerkið er einnig fáanlegt í 100mm/125mm/175mm breiddum

Við höfum lítið af klæðningum á lager yfir vetrarmánuðina, en það er alltaf hægt að panta. Það tekur ekki nema 2-3 vikur að fá efnið heim í hús.